Ég skammast mín fyrir að vera íbúi lands þar sem útlendir vinir mínir, sem hafa verið og eru búsettir hér, hafa margoft orðið fyrir misrétti, ofbeldi og fordómum bæði af kerfinu sem og einstaklingum. Við þykjumst vera með á nótunum, vel menntuð og vel stæð nútímaþjóð en þó vill það viðgangast að við högum okkur frekar eins og ólæsir bændur árið sautján hundruð og súrkál. Gamla tuggan segir að fordómar spretti af fáfræði og hræðslu við hið óþekkta. Er ennþá svo framandi fyrir fólkið í landinu að sjá manneskju af öðrum kynþætti en "arískum" (eða heyra erlendan hreim), þótt þú sjáir hana daglega á sjónvarpsskjánum í raunveruleikaþætti, hún afgreiði þig í Bónus, malbiki göturnar sem þú keyrir og pakki inn matnum sem þú kaupir?
Er það svo framandi og ógnandi að þú finnir þig knúinn sem íslenskan ríkisborgara til að ógna viðkomandi, lítillækka og niðra sökum þess að þú ert fáfróður og hefur ekki enn opnað augu og eyru fyrir því að við erum gengin inn í tuttugustu og fyrstu öldina? Þrælahald hefur verið afnumið (þótt ansi mörg íslensk fyrirtæki haldi að það sé enn við lýði), heimurinn minnkar stöðugt og ef nýjungagjarnir Íslendingar og stjórnvöld þeirra vilja ekki verða að athlægi verða þeir að fara að koma fram við nýja Íslendinga og gesti sem manneskjur og jafningja og gefa þeim jöfn tækifæri því staðan í dag er langt frá því.
Það bar á umræðunni um fátækt á Íslandi um jólin. Sláandi fréttir ómuðu í fjölmiðlum eins og það væri algjört nýmæli og við værum að heyra þetta orð í fyrsta sinn: fátækt, ji allamalla. Samviskubomba fjölmiðla dundi yfir í nokkra daga svo fólk gæti nú aldeilis rokið til og friðað samviskuna með að gefa nokkra aura í söfnunarbauka til fátæku barnanna í Afríku. Nokkrum dögum síðar voru þessar skelfingarfregnir horfnar á braut úr blöðum og af skjánum... "sem betur fer" og nú gátum við farið að einbeita okkur að sönnum anda jólanna og jólagjafainnkaupunum (ef ég nenni lalala). Aldrei meiri sala á Þorláksmessu og hvað kaupir landinn, jú safapressur eru mjög vinsælar þetta árið, það ku vera í tísku að vera heilsusamlegur. Hressandi. Þökk sé fjölmiðlum, sem tókst að stýra umræðunni frá þessu, munum við ekki þurfa að hugsa um svona leiðinlega hluti eins og fátækt og ójöfnuð á Íslandi. Nú er svo gaman að heyra í fréttum um stórpartíin sem eru haldin út um allan bæ þar sem stórstjörnur fá sjötíu milljónir fyrir að koma á klakann og skemmta. Svo eru þorrablótin og árshátíðirnar á næsta leiti, hæhójibbíjei. Ó, svo gaman að vera þjóðlegur og dressa sig upp í sparigallann.
Allsherjar alsælufyllerí á blússandi yfirdrætti fram á vor en þá má aftur fara að rifja upp "leiðinleg" málefni eins og laun fólks í mennta- og heilbrigðiskerfinu, misheppnað samgöngukerfi, fátækt, óréttlátt dómskerfi (sérstaklega í dómum kynferðisafbrotamanna) og flónskulegar ákvarðanir ráðamanna sökum stundargræðgi frá síðustu kosningatímabilum. Jú, við getum öll hlustað á kosningaloforðin í þynnkunni sem skipta í raun engu máli, jafn innantóm og blaðra, fengið okkur svo góðan afréttara á kosningakvöldinu. Stanslaust stuð og partí. Hei, af hverju ekki að einkavæða vatnið? Já, geðveik hugmynd, það ætti að stýra þjóðarskútunni frá kreppunni miklu. Partí, partí.
Orðið "firring" er orðið að klisju, en sjúkdómur er líklega besta orðið til að lýsa því sem hrjáir íslensk stjórnvöld. Eru þau kannski bara með unglingaveikina greyin?
Höfundur er leikkona, leiðsögumaður og bjartsýnismanneskja.


Athugasemdir
Mér fynnst eiginlega ekki hægt að þú kallir þig bjartsýnismanneskju, og leikkona ertu nú ekki, það er klárt, svo er það spurning hverjum fari vel af þinni leiðsögn?
Það er alveg rétt hjá þér að skammast þín fyrir þjóðernið, það er að þú hafir fengið það fyrir ekkert og kemur sjálfsagt ekki til að skila þjóðfélaginu neinu til baka, nema ef svo færi að einhver graðnagli nenni að barna þig og að skólasýstemið ali upp afkomuna fyrir þig, þú átt sérlega erfitt með að skilja nokkuð konu grei, þitt dýpi er ekki á milli þinna hlustunar tóla, það held ég að sé klárt, það er eðlilegt að skammast sín þegar maður veit að kröfur víkingaarfsins eru stærri en eiginleikar þeir sem gefnir eru og guðirnir eru ekki réttlátir.
æl á þig
Sjóveikur
Sjóveikur, 2.4.2007 kl. 22:59
Greinin var skrifud til ad na til folks eins og thin, gott ad thu fair ad nota netid tharna a sambylinu thinu, kvedja bjartsynismanneskjan.
Magnea , 3.4.2007 kl. 21:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning